fridrikv.is

Friðrik V Restaurant

Fréttir

Eyþór Ingi í heimsókn


Gestir okkar urðu þess aðnjótandi að Eyþór Ingi Gunnlaugsson kom syngjandi í heimsókn sl. miðvikudagskvöld. Það má með sanni segja að bæði íslenskir og erlendir gestir eru enn að tala um það karma sem geislar af þessum snilling í bæði framkomu og söng.
Takk fyrir komuna Eyþór Ingi.

Sumaropnun er hafin hjá okkur


Mánudaga-föstudaga
frá kl. 11.30 -13.30 og frá kl.17.30

 
Laugardaga er opið frá kl.17.30.
 
Lokað á sunnudögum  

Ný myndlistasýning hjá okkur Karen Björk Óskarsdóttir sýnir


Flæði.
Finnum sveigjanleikann og gefum eftir.
Karen Björk Óskarsdóttir fæddist 29. september 1974 á Akureyri.

Stundaði hún m.a. nám við Myndlistaskólann á Akureyri frá 1999 til 2005, fornámsdeild og síðan listhönnunardeild (grafísk hönnun).

Eftir nám fluttist Karen til Reykjavíkur og hóf störf við hönnun af ýmsum toga.

Hughrif tilfinninga og umhverfis hafa verið aðalinnblásturinn í verkum Karenar.

Þar túlkar hún tilfinningar á frjálslegan en djúpan hátt undir áhrifum líðandi stundar. Verk hennar að þessu sinni eru unnin með blandaðri tækni, akrýl á gler.

Innblásturinn að þeirri hugmynd varð til í námi hennar í listhönnunardeildinni og hefur Karen þróað hana síðan 2003.

Karen hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum en er þetta hennar fyrsta einkasýning.

Lesa meira

Hádegis kort til sölu


Viðskiptavinir okkar í hádeginu, hafa nýtt sér þau kjör sem við bjóðum upp á á hádegiskortum, hægt er að kaupa þau hjá okkur.
5 máltíðir kr. 8.000.-
10 máltíðir kr. 15.500.-

Auk þess sem notuð kort, fara í pott sem við drögum úr um hver mánaðarmót og hlýtur heppinn notandi verðlaun.

Mynd augnabliksins

slovenia_dagur_3___4_048.jpg

Póstlistar

Dagatal

« Júní 2013 »
SMÞMFFL
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30 

Könnun

If you have visited FRIÐRIK V in Laugavegur have you had:

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Deildin

Framsetning efnis

English
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning