fridrikv.is

Friðrik V Restaurant

Fréttir

ÞAÐ BESTA ÚR HÉRAÐI Á HÓTEL EDDU


Komdu á Edduhótelin í sumar og upplifðu það besta sem íslenskt hráefni býður upp á
í hverju héraði fyrir sig í snilldarútfærslu landsþekktra matgæðinga. Hjónin Friðrik V
og Arnrún ásamt starfsfólki Edduhótelanna töfra fram algjört lostæti á sanngjörnu verði.

Hér er spennandi dagskrá sumarsins Lesa meira

Erum með sjávarréttahlaðborð á Hótel Eddu Nesjum


Nú erum við hjónin á ferðinni um landið að heimsækja öll Eddu hótel landsins, á morgun laugardag 12.júni verðum við á Nesjum við Höfn í Hornafirði,  http://www2.hornafjordur.is/frettir/nr/7828

Erum komin með Facebook síðu...


Nú getið þið fylgst með okkur í sumar, þegar við ferðumst á milli Eddu hótelanna.
http://www.facebook.com/photo.php?pid=598043&id=1534832054#!/group.php?gid=123482334339919&ref=mf

FRÉTTATILKYNNING FRÁ HÓTEL EDDU, ARNRÚNU OG FRIÐRIK


Hótel Edda hefur gengið til samstarfs við hjónin Friðrik Val Karlsson og Arnrúnu Magnúsdóttur, sem áður ráku veitingastaðinn Friðrik V á Akureyri. Friðrik og Arnrún munu í sumar vinna náið með Edduhótelunum 13 sem starfrækt eru á landsbyggðinni að frekari þróun veitingastaða hótelanna.


Markmið samstarfsins er að efla enn frekar áherslu Eddu hótelanna á íslenska matargerð og hefðir, og munu hótelin njóta góðs af leiðsögn Friðriks Vals og nálgun hans á notkun íslensks hráefnis úr hverju héraði fyrir sig.


Lesa meira

Deildin

Framsetning efnis

English
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning