Lokasýning á Þjónn í súpunni - HVAÐ GERTIST ?

Það borgar sig að panta borð Verð kr.5.900.-
innifalið er leiksýning og þriggja rétta kvöldverður með víni.
"Í súpunni eru sveppir tíndir af ömmu, segir Kristján. Altso, amma tíndi sveppina. Örugglega væri hægt að tína sveppi af ömmunni en hann hefur ekki sérstakan áhuga á því."
"Hvenær lýkur sprellinu og hvenær tekur raunveruleikinn við á ný? Ætli Kristjáni hafi verið alvara með því að hann ætli að rífa Hótel KEA og setja þar upp auglýsingaskilti? "(Skapti Morgunblaðið)
Leikfélag Akureyrar og Veitingastaðurinn Friðrik V hafa tekið upp þráðinn frá síðasta leikári og bjóða upp
á 3ja rétta máltíð og "óhefðbundna þjónustu" á Friðrik V. Þjónar leika, leikarar þjóna, allir leika
á gesti og gestirnir leika á als oddi.
Leikstjóri er María Sigurðardóttir, leikhússtjóri LA.
Þetta er uppákoma sem byggir á spuna og stemmningu og aldrei að vita hvað gerist, því engar tvær sýningar eru
eins.
Matseðillinn er saminn af Friðriki V sjálfum, er hann þekktur fyrir dýrindis mat. Síðastliðinn vetur var uppselt öll kvöldin og oft var
biðlisti eftir borðum.
Miða er hægt að panta á:fridrikv@fridrikv.is og síma 4615775
Miðar óskast sóttir 1 degi fyrir sýningu annars eru þeir seldir á sýningardag.
Hér má sjá viðtal sem N4 sjónvarpsstöðin tók við Maríu og Arnrúnu http://n4.is/tube/file/view/546/





