Flýtilyklar
Fréttir
FRÉTTATILKYNNING FRÁ HÓTEL EDDU, ARNRÚNU OG FRIÐRIK
þriðjudagur 20.apríl 2010
Hótel Edda hefur gengið til samstarfs við hjónin Friðrik Val Karlsson og Arnrúnu Magnúsdóttur, sem áður ráku veitingastaðinn Friðrik V á Akureyri. Friðrik og Arnrún munu í sumar vinna náið með Edduhótelunum 13 sem starfrækt eru á landsbyggðinni að frekari þróun veitingastaða hótelanna.
Markmið samstarfsins er að efla enn frekar áherslu Eddu hótelanna á íslenska matargerð og hefðir, og munu hótelin
njóta góðs af leiðsögn Friðriks Vals og nálgun hans á notkun íslensks hráefnis úr hverju héraði fyrir sig.

Eddu hótelin hafa ávalt lagt áherslu á að nýta það hráefni sem finna má úr nágrenni hvers hótels fyrir sig í sinni matargerð, og kynna þannig íslenska ferskvöru og matarhefðir fyrir erlendum gestum hótelanna, við góðan orðstír.
Í samstarfi við þau hjónin munu hótelin nú leggja áherslu á að skerpa enn frekar á sérstöðu hvers og eins hótels, og draga fram helstu eiginleika íslenskrar náttúru og síns nánasta umhverfis í sinni matargerð.
Edduhótelin hafa fyrir löngu unnið sér sess sem hagkvæmur og þægilegur gistimáti á ferðalögum um Ísland. Nú eru starfrækt þrettán Edduhótel vítt og breitt um landið og er sérhvert þeirra í námunda við einhverjar af helstu náttúruperlum landsins.
Eddu hótelin bjóða hjónin Friðrik Val og Arnrúnu innilega velkomin á Edduhótelin í sumar. Starfsmenn hótelanna munu taka vel á móti þeim hjónum, og hlakka til að njóta góðs af fagmennsku þeirra og áralangri reynslu. Við bjóðum jafnframt alla ferðalanga á ferð um Íslands velkomna á veitingastaði Eddu hótelanna í sumar. Það er okkur tilhlökkunarefni að bera með stolti á borð íslenskan mat, framreiddan af fyrsta flokks fagmennsku á alþjóðavísu.
Fylgist með á www.hoteledda.is



