fridrikv.is

Friðrik V Restaurant

Fréttir

FRIÐRIK V er hættur starfsemi.

FRIÐRIK V er hættur starfsemi.
Stofnendur staðarins og meirihlutaeigendur, Friðrik Valur Karlsson og Arnrún Magnúsdóttir, tilkynntu þetta á starfsmannafundi í gærkvöldi.

Ástæðan er einfaldlega sú að þau sjá ekki rekstrargrundvöll á sömu forsendum og hingað til,möguleiki á því að draga úr gæðum staðarins en sú hugmynd hugnast okkur hjónum ekki.
Friðrik og Arnrún opnuðu staðinn fyrir níu árum við Strandgötu og fluttu starfsemina í gamalt, nýuppgert hús við Kaupvangsstræti árið 2007. Þau hafa orðið vör við talsverðan samdrátt fyrstu tvo mánuði þessa árs miðað við sama tíma í fyrra og sjá ekkert í stöðunni sem bendir til þess að hlutirnir muni lagast á Akureyri á næstu misserum.
Þess vegna telja þau það ábyrga ákvörðun gagnvart starfsfólki og birgjum að hætta núna.



Deildin

Framsetning efnis

English
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning