fridrikv.is

Friðrik V Restaurant

Fréttir

Friðrik V og Margrét Eir - skemmtileg kvöldstund

Sýningin "Söngleikir með Margréti Eir" Dásamleg upplifun, góð tónlist, góður matur, einstakur fluttingur á lögum úr söngleikum, grín og jafnvel tár. Þar sem Friðrik V og Margrét Eir sameina krafta sína

  Sýningin "Söngleikir með Margréti Eir" Dásamleg upplifun, góð tónlist, góður matur, einstakur fluttingur á lögum úr söngleikum, grín og jafnvel tár. Þar sem Friðrik V og Margrét Eir sameina krafta sína
Eins og nafnið gefur til kynna ætlar Margrét að syngja lög úr helstu söngleikum bæð nýjum,gömlum,þekktum og óþekktum söngleikum. Þarna má til dæmis nefna Söngleiki eins og Cats, Company, Song and Dans, Cabaret og Les MIsarable.
Píanóleikari á sýningunni er Vignir Þór Stefánsson. Á hverri sýningu kemur einnig gestasöngvari og þar á meðal eru Þór Breiðfjörð, Ágúst Ólafsson, Heiða ÓLafsdóttir, Sigríður Eyrún og fleiri...það er aldrei að vita hver verður á sýningunni sem þú velur.
Til að þið njótið kvöldsins enn betur eru Friðrik V og hans fólk með full borð matar, þið einfaldlega mætið kl.19 í mat og sýningin byrjar kl.20 - í hlé er síðan boðið upp á sætindi.
Dásamleg kvöldstund, aðeins örfáar sýningar eftir og takmarkaður sætafjöldi.
Nánari upplýsingar á www.tjarnarbio.is

Einlægir aðdáendur af góðum mat, söngvamynda og söngleikja ættu ekki að láta þessa kvöldstund fram hjá sér fara.

Sýningar verða:
laug. 8 okt
Fös 21 okt
Lau 22. okt
Sun 30 okt
Lau 19 nóv
laug 10 des
Verð:5400 kr fyrir mat og sýningu (Húsið opnar 18.30 og matur er borin fram 19.00. Sölu á þessum miðum er hætt degi fyrir sýningu)
3200 kr fyrir sýninguna (byrjar klukkan 20.00)
Hópar:  
Hafið samband við Tjarnarbíó í síma 5272102 eða midasala@tjarnarbio.is




Mynd augnabliksins

bogglageym_038.jpg

Póstlistar

Deildin

Framsetning efnis

English
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning