fridrikv.is

Friðrik V Restaurant

Fréttir

Grein eftir Friðrik V sem birtist í Helgarblaði Morgunblaðsins fyrr í vetur



Það er gaman að sjá hversu mikið úrval er á boðstólnum af allskyns íslenskum vörum nú í vetur. Ég var að hugsa til baka og mynnist þess þegar ég kom að verkefni fyrir nokkrum árum í Listaháskóla Íslands sem kallaðist „Stefnumót hönnuða og bænda“ þá var ekki hægt að fá sultur á höfuðborgarsvæðinu úr villtum berjum og jafnvel ekki úr íslenskum rabarbara.  Nú er hægt að finna sultur, sýróp, saft, mjólkurvörur, hunang og fleira frá öllum landshlutum í fjölda verslana á höfuðborgarsvæðinu. Þetta hlýtur að segja okkur að íslenskir neytendur vilja vörur úr náttúrunni og tengdar framleiðendanum eins og ég vil kalla það „vörur með andlit“ það fylgir ábyrgð að nota yfirlýsingar eins og „Beint frá bónda“ eða „Svæðisbundið“ mér finnst sumir veitingamenn og framleiðendur fara frjálslega með þessar fullyrðingar, ég sá einu sinni auglýsingu í blaði í millilanda flugvél frá íslenskum veitingastað „Fresh from a farmersmarket“ annarsstaðar í blaðinu var umfjöllun um sama staðin þar sem þeir sögðu sína þekktustu rétti vera túnfisk, tígrisrækjur og kóngakrabba. Það fær mann til að hugsa hvort mönnum sé alvara með þessum fullyrðingum.
Fyrir fólk eins og okkur sem tilbúið er að taka krók fyrir gott íslenskt hráefni, tala nú ekki um þá sem leggja áherslu á lífrænt ræktaðar afurðir, er Lifandi markaður frábær staður að heimsækja. En Lifandi markaður var áður Maður lifandi en er nú orðin meiri verslun en þó enn með veitingasölu eins og áður sem sérhæfir sig í hollustu drykkjum og mat. nú leggja þeir enn meiri áherslu á ferskt og unnið lífrænt hráefni. Þar er frábært úrval af íslenskum vörum til dæmis hreinum kjúlklingi, lífrænu íslensku grænmeti og kjötvöru, allskyns íslenskum sultum, hunangi og sýrópi. Ég fann Fíflasýróp og Grenisýróp frá Löngumýri á Skeiðum, sem ég hugsa mér að bera fram með íslenskum ostum úr Dölunum, Tvíbökuðu brauði úr lífrænt ræktuðu spelti sem bakað er á Selfossi og Aðalbláberjasultu að austan. Þar er líka hægt að fá spelt tortillur, lífrænt snakk, allskonar fræ, Íslensk te í úrvali og að sjálfsögðu öll þau vítamín sem við þurfum í skammdeginu. Í síðustu heimsókn datt ég í lukkupottinn og fann stafapasta sem ég hef leitað að síðan kreppan skall yfir okkur, og ekki nóg með það ég fann tvær gerðir bæði lífrænt og spelt, það vill nefnilega þannig til að ég lofaði tveim ungum vinum mínum þeim Óliver og Viktor stafasúpu fyrir margt löngu, en þeir eru mér mjög hjartfólgnir enda fyrstu börnin sem kölluðu mig afa sem mér finnst mjög fallegt, en börnunum mínum finnst mjög fyndið þar sem þeir eru synir æskuvinar míns sem er jafnaldri minn og ég að sjálfsögðu ekki orðin afi, þó svo að börnin mín séu orðin ungt fólk.


Mynd augnabliksins

saelkeraferd_26.7_029.jpg

Póstlistar

Deildin

Framsetning efnis

English
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning