fridrikv.is

Friðrik V Restaurant

Fréttir

Kaffi FRIÐRIKS V er komið í hús


Einstök blanda af kaffi er nú til sölu hjá okkur í sælkeraverslun okkar. Í góðu samstarfi við Kaffitár erum við nú komin með okkar eigið kaffi til sölu.
Blandan er tært kaffi með mikilli fyllingu, örlitlum ávexti og ákveðnu bragði af hlynsírópi. Krydd og dökkt súkkulaði.

Þess má geta að konfektið okkar hefur verið gríðarlega vinsælt.

Jólagjöfin í ár, Kaffi og konfekt FRIÐRIKS V, einstök gjöf Fágætt kaffi í takmörkuðu upplagi. Raja Batak er Arabíka kaffi, ræktað vestur af vatninu Toba í Norður-Súmatra í 1000-1600 m hæð yfir sjávarmáli. Bændur á þessu svæði eiga einungis litla skika lands. Vinnusluaðferðin er þannig að strax að tínslu lokinni tekur bóndinn berið utan af kaffibauninni og breiðir það út til þerris (semi washed and handpulped).  Á nokkurra daga fresti er kaffi safnað saman frá öllum bændum á svæðinu og það unnið og flokkað til útflutnings. Þetta kaffi er ekki þvegið með vatni eins og oftast er gert í Mið- og suður-Ameríku. Fyrrir bragðið verður kaffið fylltara og við greinum sætan jarðarkeiminn. Það sem okkur finnst skemmtilegast við þetta kaffi er hvað það er tært þannig að allir bragðtónarnir koma í gegn.


Mynd augnabliksins

nemendur_2152.jpg

Póstlistar

Deildin

Framsetning efnis

English
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning