Terra Madre dagurinn er 10. desember

Ætlunin er að vekja fólk til vitundar um matvæli sem eru góð, hrein og sanngjörn, en þessi einkunnarorð Slow Food vísa til þess að maturinn eigi að bragðast vel, að hann eigi að vera framleiddur af virðingu fyrir náttúrunni og á grundvelli félagslegs réttlætis. Haldið verður upp á daginn í 150 löndum, en skipuleggjendur eru 100.000 meðlimir í samtökunum sem mynda 1.300 deildir (Convivium) um allan heim, ásamt svokölluðu “Terra Madre” tengslaneti sem telur 2.000 manns, matreiðslumenn, kennara, námsmenn, sérfræðinga o.fl. sem koma að landbúnaði og matvælaframleiðslu með einhverjum hætti.
Stofnsáttmáli Slow Food var undirritaður 10. desember árið 1989, og hafa þessi alþjóðlegu samtök því starfað
í 20 ár. Það þótti viðeigandi að dreifa veisluhöldunum með þessum hætti til þess að vekja athygli á
því mikilvæga starfi sem unnið er í grasrótinni um allan heim í nafni Slow Food.
Terra Madre ráðstefnan er líklega einn stærsti og mikilvægasti samkomustaður smábænda og framleiðenda í heiminum í dag, og
því viðeigandi að Slow Food veki athygli á þessum málaflokki sem miðar að því að snúa þróun í
matvælaframleiðslu í átt til aukinnar sjálfbærni, bragðgæðum og fjölbreytileika.
Terra Madre dagurinn verður eitt stærsta, samræmda, alþjóðlega átak sem staðið hefur verið fyrir til að hvetja fólk til að velja
staðbundin gæðamatvæli umfram annað. Ætlunin er að vekja athygli á stöðu landbúnarðarins og rétti samfélaga til að
viðhalda smáframleiðslu og fjölbreytni í matvælaframleiðslu, framleiðslu sem viðheldur menningu og er í sátt við umhverfið.





