fridrikv.is

Friðrik V Restaurant

Fréttir

Allra síðustu sýningar á Þjón í súpunni


ALLRA SÍÐASTA SÝNING Kl. 19.30 þriðjudaginn     16.febrúar - UPPSELT

Verð kr.5.900.- innifalið er leiksýning og þriggja rétta kvöldverður með víni.
Miða er hægt að panta á:fridrikv@fridrikv.is  og síma 4615775
Miðar óskast sóttir 1 degi fyrir sýningu annars eru þeir seldir á sýningardag.


"Í súpunni eru sveppir tíndir af ömmu, segir Kristján. Altso, amma tíndi sveppina. Örugglega væri hægt að tína sveppi af ömmunni en hann hefur ekki sérstakan áhuga á því."

"Hvenær lýkur sprellinu og hvenær tekur raunveruleikinn við á ný? Ætli Kristjáni hafi verið alvara með því að hann ætli að rífa Hótel KEA og setja þar upp auglýsingaskilti? "(Skapti Morgunblaðið)

Leikfélag Akureyrar og Veitingastaðurinn Friðrik V hafa tekið upp þráðinn frá síðasta leikári og bjóða upp á 3ja rétta máltíð og "óhefðbundna þjónustu" á Friðrik V. Þjónar leika, leikarar þjóna, allir leika á gesti og gestirnir leika á als oddi.
Leikstjóri er María Sigurðardóttir, leikhússtjóri LA.

Þetta er uppákoma sem byggir á spuna og stemmningu og aldrei að vita hvað gerist, því engar  tvær sýningar eru eins.
Matseðillinn er saminn af Friðriki V sjálfum, er hann þekktur fyrir dýrindis mat. Síðastliðinn vetur var uppselt öll kvöldin og oft var biðlisti eftir borðum.


Hér má sjá viðtal sem N4 sjónvarpsstöðin tók við Maríu og Arnrúnu http://n4.is/tube/file/view/546/


Mynd augnabliksins

img_0311.jpg

Póstlistar

Deildin

Framsetning efnis

English
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning