fridrikv.is

Friðrik V Restaurant

Fréttir

Uppskrift jólarauðkáli FRIÐRIKS V

Af gefnu tilefni þá birtum við hér uppskrift af vinsæla jólarauðkálinu okkar.
Verði ykkur að góðu og gleðilega hátíð

Jólarauðkál
1 haus rauðkál 

2 beikon sneiðar 

½ laukur

½ rautt epli

½ kanilstöng

2 negulnaglar

1 dl sykur

½ dl rauðvínsedik

smá múskat

1 msk smjör


Aðferð:

Saxið laukinn, eplið og beikonið og brúnið í smjörinu. Myljið kanilinn og negulinn í morteli og blandið saman við ásamt sykrinum látið hann bráðna áður en smáttsöxuðu rauðkálinu er blandað saman við og edikinu og múskatið raspað út í og þetta soðið í 20 mín og síðan látið standa í 1 klst. má borða heitt og kalt.



Mynd augnabliksins

nemendur_2128.jpg

Póstlistar

Deildin

Framsetning efnis

English
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning