Flýtilyklar
Fréttir
Friðrik og Arnrún ráðin á veitingarstaðinn á Hótel Loftleiðum
þriðjudagur 04.janúar 2011

Friðrik Valur og Arnrún munu ásamt starfsfólki veitingarstaðarins leggja áherslu á að nota íslenskt og ferskt árstíðabundið gæðahráefni þar sem matseðillinn endurspeglar árstímann, mun upplifun og fræðsla vera stór partur af borðhaldi veitingarstaðarins.
Árstíðarbundin hlaðborð og réttir, eins og villibráðahlaðborðið, skata á Þorláksmessu og jólahlaðborð eru viðburðir sem njóta ávallt vinsælda og mun verða gert hátt undir höfði. Til viðbótar við þessi árstíðabundnu rétti spilar íslenskur fiskur stórt hlutverk í matseðlinum árið um kring.
Boðið er uppá glæsilegt morgun-, hádegis- og kvöldverðarhlaðborð alla daga vikunnar
- Morgunverðarhlaðborð frá kl. 04:30 – 10:00
- Hádegisverðarhlaðborð frá kl. 10:00-14:00
- Kvöldverðarhlaðborð frá kl. 18:00 - 21:00
- Herbergisþjónusta er í boði frá kl. 07:00 - 23:00
Hótelbar
Á Hótel Loftleiðum er bar á jarðhæð. Þar er tilvalið að setjast niður og slaka á eftir viðburði dagsins eða að slappa
af eftir vel heppnaða máltíð.
- Hótelbarinn er opinn frá kl. 12:00 - 23:00 alla daga vikunnar



