Fyrir 4 til 6
1 kg bleikjuflök (bein- og roðlaus)
2 egg
4 dl haframjöl
salt og pipar
olía og smjör
Aðferð
Skerið bleikjuna í 80 til 100 g stykki. Hrærið eggin út, veltið bleikjunni upp úr eggjunum og síðan haframjölinu og steikið á meðalheitri pönnu upp úr olíu og smjöri. Hitið pönnuna ekki of mikið því þá getur smjörið brunnið. Kryddið fiskinn eftir steikingu með salti og pipar .
Hundasúrudressing
5 bollar hundasúrur (stilkalausar og skolaðar)
½ dl jómfrúar-ólífuolía
2 dl sýrður rjómi
salt
Maukið hundasúrurnar í morteli eða matvinnsluvél í olíunni þannig að maukið verði samfellt. Þá er sýrða rjómanum hellt út í og dressingin smökkuð til með salti.
Berið bleikjuna fram með pönnusteiktum kirsuberjatómötum og hugsanlega snöggsteiktum hundasúrum.





