1 uppskr. franskbrauð
60 g smjör (lint)
3 hvítlauksrif
2 msk. steinselja
Saxið steinseljuna og hvítlaukinn og blandið saman við smjörið. Skiptið 1 uppskrift af franskbrauði í fjóra jafna bita og mótið í snittubrauð . Hefið brauðið í 30 mín. Skerið djúpan skurð eftir endilöngu brauðinu, sprautið hvítlaukssmjörinu inn í brauðið og lokið vel þannig að brauðið opni sig ekki í bakstinum. Bakið við 200°C til 210°C í 13 til 20 mín. þannig að brauðið verði stökkt að utan.





