1 haus rauðkál
2 beikon sneiðar
½ laukur
½ rautt epli
½ kanilstöng
2 negulnaglar
1 dl sykur
½ dl rauðvínsedik
smá múskat
1 msk smjör
Aðferð:
Saxið laukinn, eplið og beikonið og brúnið í smjörinu. Myljið kanilinn og negulinn í morteli og blandið saman við ásamt sykrinum látið hann bráðna áður en smáttsöxuðu rauðkálinu er blandað saman við og edikinu og múskatið raspað út í og þetta soðið í 20 mín og síðan látið standa í 1 klst. má borða heitt og kalt.





