fyrir 4 manns
4 þunnar sneiðar úr lambalærvöðva (snitsel)
100 gr semalínahveiti eða heilhveiti
olía til steikingar
1 laukur saxaður
1 til 2 msk fersk bergminta (oregano)
1 til 2 msk ítölsk steinselja
1 bolli hvítvín eða mysa
1 sítróna helst sorento
½ bolli jómfrúarólífuolía má vera meira
flögu salt og svartur pipar
Veltið sneiðunum upp úr hveitinu og brúniðí olíu á pönnu þar til þær eru gylltar takið af pönnuni og svitið laukinn í smá stund áður en hvítvíninu og safanum úr sítrónunni er bætt út á pönnuna ásamt kryddjurtunum og ólifuolíunni og þetta soðið í smá stund áður en sneiðarnar eru settar aftur á pönnuna og þær soðnar í smá stund í vökvanum og þá bornar fram í honum með sítrónubát, soðnum kirsuberjatómötum og klettasalati .





