500 gr Vanilluskyr frá KEA
2 dl brauðrasp
5 kökur haustkex eða annað hafrakex
1 msk kanill
3 msk hrásykur má vera hvítur sykur
4 eggjahvítur
Örl vatn
Frystið skyrið í formum sem mynda hálfar kúlur (formin fást í betri verslunum fyrir fagmenn og matar áhuga fólk)
Þegar skyrið er frosið í gegn er það tekið úr forminu og formin fest saman tvö og tvö þannig að verði kúla. Þá eru kúlurnar geymdar í frysti á meðan eggin eru þeytt létt og allt hitt maukað vel saman í matvinnsluvél og sigtað kúlunum er vellt upp úr eggjahvítunum og síðan raspinu 2 til 3 sínnum áður en þær eru djúpsteiktar við mikinn hita í stuttan tíma.
Leyfið kúlunum að standa í stofu hita í 10 – 15 mín a.m.k. áður en þær eru bornar fram þannig að ekki sé frost í kúlunni. Berið fram með sætri sultu og súrum ávöxtum.





