Flýtilyklar
Vanillu-skyrfrauð
500 g vanilluskyr frá KEA
3 dl þeyttur rjómi
5 blöð matarlím
30 g sykur
2 eggjahvítur
Eggjahvítan og sykurinn eru stífþeytt, skyrinu og þeytta rjómanum er blandað saman og matarlíminu út í það og síðan eggjablöndunni. Þessu er blandað vel saman með sleif. Alls ekki þeyta.
Sett í form og kælt yfir nótt.
Basil sýróp
1 dl vatn
80 g sykur
1 dl ferskt basil
Vatnið og sykurinn er soðið saman þar til sykurinn er uppleystur. Kælið sýrópið vel áður en basilið er kramið í mortéli og blandað saman við og sigtað. Berið frauðið fram með ferskum jarðarberjum eða hindberjum.




