Fyrir 12 manns
1/3 dl mjólk
1 1/2 dl rjómi
500 g konsum suðusúkkulaði (Nói-Sírius)
8 egg
120 g sykur
230 g smjör
Aðferð:
Setjið mjólkina og rjómann í pott. Látið yfir vægan hita og bræðið súkkulaðið þar í. Látið kólna aðeins.
Þeytið saman eggin og sykurinn þar til það verður ljóst, létt og froðukennt. Þá er súkkulaðiblöndunni hrært út í og þessu blandað vel saman.
Nuddið smjörinu (sem er við stofuhita) smátt og smátt saman við súkkulaðiblönduna með sleif.
Geymið í kæli í 1-2 tíma áður en deigið er látið í smurðar „souffle“-skálar og bakað í ofni við 180 gráður í 10-14 mínútur.
Búðingurinn á að vera hrár í miðjunni. Gott er að bera fram vanilluís og fersk ber með búðingnum.





